| Hreindýrabollur |
| Written by zebitz |
| Friday, 26 December 2008 13:07 |
|
Hreindýrabollur eru hreint lostæti en smá kúnst að útbúa svo vel verði. Hér eru tvær fínar uppskriftir ásamt góðum leiðbeiningum um hvernig vinna skal hráefniðog uppskrift af sósu er svo neðst á síðunni. Meira að segja Óli ætti að geta gert bollur út frá þessari uppskrift Almennt um hreindýrabollur Hreindýrabollur með svínaspekki Ef gera á bollurnar hlutlausari er hægt að nota Kalv fond frá Touch of Tast í stað Vild og Kantarell. Svínaspekkið er hakkað niður og svo er ölluð blandað saman í matvinnsluvél. Útbúið litlar bollur úr farsinu ca. 1,5 til 2 cm, ef þær eru mjög blautar má bæta smá hveiti við. Þegar þú steikir kjötbollurnar þá skaltu gera það við háan hita til að brúna þær, lækkaðu síðan hitann og leyfðu þeim að steikjast hægt undir loki í 5-8 min. Passaðu þig á að ofelda þær ekki þar sem þá verða þær of þurrar. Hreindýrabollur án svínaspekks Blandið öllu vel saman og hrærið þar til farsið er hæfilega þykkt til að rúlla bollur úr því. Rúllið litlar bollur úr farsinu, ef það er of þurrt má bæta í það mjólk eða rjóma, ef það er of blautt má bæta hveiti út í. Steikið bollurnar við meðalhita í smjöri. Sósa Fjarlægðu kjötbollurnar af pönnunni og haltu þeim heitum undir álpappír í ofni. Blandaðu smá mjólk eða rjóma út á pönnuna og hrærðu vel úr botninum af pönnunni til að fá eins mikið af búna bragðinu í sósuna og kostur er. Hrærðu saman við bréfi af Blå Band Brúnsósu eða Rauðvínssósu og láttu suðuna koma upp. Smakkaðu til með smávegis af Vild og kantarell-fond frá Touch of Taste. Síðan er hefðbundið að setja að endingu 1 – 2 msk af rifsberjahlaupi og tsk af góðu Dijon sinnepi. Þetta á að gera rétt áður en borið er fram því sósan má ekki sjóða eftir að sinnepið hefur verið sett í hana. Með því að bera hreindýrabollurnar fram með steiktum villisveppum (kantarellum eða maurell) og grilluðum sellerírótarstrimlum þá muntu auka enn frekar á villbráðarbragðið. Einnig er gott að bera fram með rifsberjahlaupi eða títuberjasultu, kartöflum og eplasalati. |
